Nýjir viðskiptavinir geta hringt í 5100600 á milli 8:30 og 16:30 og fengið samband við sérhæfða söluráðgjafa sem býður kynningu og gefur tilboð. Einnig má senda fyrirspurnir á sales@trackwell.com með vísun í einstök kerfi.
Hvað þarf til að byrja að nota TrackWell Timon?
TrackWell Tímon er boðinn í vefhýsingu þannig að það eina sem viðskiptavinir þurfa til að byrja er nettengd tölva sem fær aðgang að forðastýringakerfinu. Inn- og útskráningar starfsmanna geta farið fram í gegnum veftengda tölvu, frá vinnustöð eða í gegnum síma. Einnig er möguleiki að aðlagast sérhæfðum búnaði eins og stimpilklukkum eða öryggiskerfi.
Hvað þarf til að byrja að nota TrackWell Flota?
TrackWell Floti er boðinn í vefhýsingu þannig að það eina sem viðskiptavinir þurfa til að byrja er nettengd tölva sem fær aðgang að forðastýringakerfinu. Tækjabúnaður í farartæki er síðan afhentur af starfsmönnum TrackWell, en gert er ráð fyrir að viðskiptavinir eða sérhæfð rafeindaverkstæði sjái um uppsetningu tækjanna.
Hvað þarf til að byrja að nota TrackWell SeaData?
Sækja má um rafræna afladagbók á vef Fiskistofu, www.fiskistofa.is.
TrackWell Seadata er uppfærsla á þeim búnaði og gerir ekki frekari kröfur um borð í bátum. Fyrir Útgerðarstjóra þarf venjulega PC vél með nettengingu og aðgang að tölvupósti.
Hvað þarf til að fá ráðgjöf varðandi sérlausnir?
Söluráðgjafar TrackWell þekkja vel til ýmissa sérlausna sem unnar hafa verið hjá TrackWell og geta vísað til hugbúnaðarsérfræðinga varðandi tæknileg málefni. Hugbúnaðarsérfræðingar TrackWell eru reiðubúnir að aðstoða við verkefni á sínu sérsviði og hefst ferlið á fundi þar sem frekari skref eru áætluð.
Frekari upplýsingar má fá hjá söluráðgjafa.