Trackwell

TrackWell og Alþjóðabankinn í samstarfsverkefni

Miðvikudagur, 07 janúar 2009

 

TrackWell og Alþjóðabankinn… TrackWell annars vegar og Alþjóðabankinn hafa undirritað samning um uppsetningu fiskveiðieftirlitskerfis fyrir túnfiskveiðiskip við Maldiveyjar.  Verkefnið er unnið í nánu samstarfi við Rannsóknarstofnun Sjávarútvegsins og Sjávarútvegsráðuneyti Maldiveyja.

 

Verkefnið er tilraunaverkefni sem felur í sér eftirlit með túnfiskveiðum og beituveiðum fyrir þær til að meta umfang hvors um sig í rekstri útgerða og hagkvæmni veiðanna.

 

TrackWell leggur til ráðgjöf, íslenskan hugbúnað TrackWell og tæki í þetta verkefni. Gangi verkefnið eins og vonast er til er ætlunin að lausnin verði innleidd víðar á þessu hafsvæði.