Föstudagur, 02 maí 2008
Ný útgáfa af TrackWell Flota, útgáfa 4.0 er kominn í loftið. Allir notendur voru uppfærðir í nýju útgáfuna um sl. mánaðarmót árekstralaust. Fyrir utan breytt viðmót með nýju útliti þá eru ýmsar nýjungar í kerfinu sem tengjast skýrslum og úrvinnslu gagna. Þróun kerfisins hefur ávalt farið fram í nánu samstarfi við viðskiptavini TrackWell og er það ómetanlegt bæði fyrir núverandi viðskiptamannahóp og væntanlega viðskitpavini sem njóta góðs af.