Trackwell

TrackWell Flotastjórnun – Bílstjóratölva

Föstudagur, 09 maí 2008

 

Ein helsta nýjungin í Trackwell flotastýringarkerfinu er bílstjóratölva. Þetta er öflugur valkostur fyrir fyrirtæki sem taka upp TrackWell Flota. Um er að ræða snertiskjá sem gerir bílsjtórum kleift að lesa verkbeiðnir og textaskilaboð og senda stöðluð svör á flotastjórann. Flotastjóri getur séð á skjá hjá sér stöðu bíla, eins og hvort þeir séu lausir, uppteknir, inni/úti, í mat eða bilaðir eftir atvikum. Viðmótið minnir á það sem er að finna á skjám í leigubílum.

 

Kerfið eykur öryggi í umferðinni, dregur m.a. úr notkun farsíma í akstri og bætir skilvirkni í samskiptum starfsmanna.