Trackwell

TrackWell á evrópsku sjávarútvegssýningunni í Brussel

 seafood-processing-europe

 

Föstudagur 8. janúar 2010

 

TrackWell er á meðal sýnenda á  evrópsku sjávarútvegssýnunginni í Brussel, sem haldin verður 27. – 29. april 2010.

Bás TrackWell verður staðsettur á íslenska þjóðarbásnum í höll 4. 

Þar munum við sýna rafrænar afladgbækur og upplýsingakerfi  fyrir sjávarútvegsfyrirtæki.

Sjá heimasíðu Seafood Processing Europe

 

Rafrænar afladgbækur í ESB löndum

Samkvæmt ESB reglugerð 1088/2008 eiga öll fiskiskip  stærri en 24 metrar að taka upp rafrænar afladagbækur á árinu og sama gildir um öll skip stærri en 15 m frá 1. júlí 2011. Kveðið er á um að skipin sendi daglegar aflaskýrslur til yfirvalda á meðan á veiðum stendur.

TrackWell  býður útgerðum þessara landa lausnir sem þróaðar hafa verið fyrir viðskiptavini á Íslandi, í Færeyjum og í Noregi.