Trackwell Tímon er öflugt tímaskráningar- og viðverukerfi sem hentar jafnt minnstu sem stærstu fyrirtækjum. Með notkun tryggja stýrendur fyrirtækja sér hámarks nýtingu mannauðs auk þess sem kerfið veitir heildar yfirsýn launakostnaðar og nýtist sem stýritæki mannauðs. Tímon er sérlega einfaldur í notkun og tengist öllum helstu launakerfum.
Tímon Viðvera - Hægt er að fylgjast með viðveru starfsmanna, sjá hverjir eru fjarverandi – á fundi eða skroppið frá, auk umsjóna með veikindi og orlof. Hægt að taka út stimplanir í Excel. Hentugt fyrir símaborð og móttöku og einnig fyrir samstarfsmenn. Tenging við Outlook dagatal. Frekari upplýsingar um viðveru.
Verð frá 400 kr á notenda á mánuði, auk stofnkostnaðar*.
Tímon Tímaskráning gefur þér yfirsýn yfir tíma starfsfólks, einfaldar verkferla og gefur þér réttari upplýsingar við launaútreikninga.
Launafulltrúar nýta sér útreikninga samkvæmt helstu kjarasamningum og tengingu við öll helstu launakerfi. Samþykktarferli stimplana og samskiptakerfi millistjórnenda dreifir ábyrgð og gefa réttari gögn. Utanumhald orlofsstöðu starfsmanna og veikindi og margt fleira.
Stjórnendur nýta sér safn skýrslna til að fylgjast daglega með rekstrarkostnaði . Starfsmanna- og mannauðsstjórar fylgjast með mætingum, þróun veikinda/ fjarvista ásamt mönnunarþörf og starfsmannaveltu. Frekari upplýsingar um tímaskráningu.
Verð frá 700 kr á notenda á mánuði, auk stofnkostnaðar*.
Tímon Verkskráning býður upp á stimplun á verk og verkskráningu. Með farsíma geta starfsmenn stimplað sig á verk um leið og það er unnið. Hægt er að taka út skráningar á verk til reikningagerðar og í bókhald. Verkstjórar öðlast yfirsýn yfir framgang verkefna og hægt er að fylgjast framlegð og raunkostnaði verkefna. Tengingar eru fáanlegar í verkbókhald ásamt úttekt við öll helstu launakerfi. Frekari upplýsingar um verkskraningu.
Verð frá 800 kr á notenda á mánuði, auk stofnkostnaðar*.
*miðast við leyfi fyrir 50 starfsmenn hjá fyrirtæki
Hægt er að velja um þá stimplunarleið sem hentar þínu fyrirtæki og starfsmönnum. Stimpilklukkur, tölvur, borðsímar, farsímar, úr tækjastiku og sambland af því . Allir möguleikar fylgja kerfinu og eru til staðar við afhendingu. Einnig er hægt að tengja við starfsmannakort og auðkennislesara.
Viðbótareiningar fást við Tímon til dæmis uppmælingarkerfi, vaktakerfi/mannaflaþörf og mötuneytiskerfi.
Pantaðu kynningu eða fáðu verðtilboð: ![]()
Allar nánari upplýsingar í síma: 5 100 600 eða með því að senda póst á netfangið: sales@trackwell.com