Föstudagur, 11 apríl 2008
Sjávarútvegsráðherra Indónesíu ásamt fylgdarliði heimsótti TrackWell í dag og kynnti sér hugbúnaðarlausnir til fiskveiðieftirlits. Fundurinn var árangursríkur og ákveðið var að hefja viðræður um nánara samstarf. TrackWell hefur um árabil verið leiðandi fyrirtæki á svið lausna fyrir strandríki sem vilja efla eftirlit og bæta stjórnun fiskveiða.