
Afurðabókin er útvíkkun á Afladagbókinni. Með henni er haldið utan um fjölda kassa eða kara, stærðarflokkun, ástand og gæðamat hverrar einingar fyrir hverja færslu í Afladagbók (kast eða dag). Auk þess eru skráðar upplýsingar um nýtingu, verð og stærð eininga fyrir hverja veiðiferð.
Dæmi: Frystitogarar skrá inn fjölda kassa eftir kassanúmeri (t.d. eininguna F101 fyrir beinlausan og roðlausan þorsk, flakastærð 350 g til 500 g). Ísfiskskip skrá inn fjölda kara eftir stærð (t.d. eininguna þorskur lítill).
