12. mars 2010
Forseti Maldive eyja hr. Mohamed Nasheed heimsótti TrackWell ásamt hr. Ólafi Ragnari Grímssyni forseta Íslands. Forsetarnir hafa rætt um samvinnu landanna á sviði sjávarútvegs og orkumála sem og nauðsyn þess að efla baráttuna gegn loftslagsbreytingum.
Forsvarsmenn TrackWell kynntu fyrir forsetunum og föruneyti þeirra sjávarútvegslausnir TrackWell. TrackWell hefur síðustu misseri unnið að nýrri kynslóð lausna á sviði auðlindastjórnunar, m.a. í samvinnu við Alþjóðabankann. Sett hefur verið upp fyrsta útgáfa af kerfinu fyrir yfirvöld á Maldive eyjum til þess að einfalda eftirlit með tunfiskveiðum og umsjón auðlinda.
Fundurinn drógst nokkuð á langinn þar sem mikil umræða var um hvernig Maldive eyjar gætu nýtt sér þær lausnir sem TrackWell hefur þróað í samvinnu við Íslensk yfirvöld til stjórnunar á sýnum hafsvæðum. Yfirvöld á Maldive eyjum hafa á stefnuskrá sinni að auka innlendar veiðar innan lögsögu á umhverfisvænan hátt.
http://forseti.is/Frettir/Ollfrettin/upplysingataekniithagusjavarutvegs/