Fimmtudagur, 03 júní 2010
TrackWell hefur samið fyrir norska fyrirtækið NAVY AS um að sjá um sölu og þjónustu á rafrænum afladagbókum frá TrackWell í Noregi.
Reglugerð frá norsku fiskistofunni kveður á um að öll fiskiskip stærri en 21m skuli hafa tekið í notkun rafræna afladagbók fyrir 1. október 2010 og öll skip stærri en 15m fyrir 1. janúar 2011.
TrackWell hefur þegar fengið vottun frá norsku fiskistofunni og kerfið hefur verið aðlagað og sett í notkun um borð í nokkrum norskum fiskiskipum. Kerfið verður selt í Noregi undir nafninu “TrackWell Fangstdagbok”.
NAVY er eitt stærsta skipaþjónustufyrirtæki Noregs með yfir 100 tæknimenn á 20 starfstöðvum meðfram strönd Noregs, allt frá Fredrikstad til Kirkenes.
TrackWell Fangstdagbok verður kynnt á NAVY básnum á sjávarútvegssýningunni Nor-Fishing 2010 í Þrándheimi nk. ágúst
Frekari upplýsingar um TrackWell Fangstdagbok í Noregi:
NAVY AS
Per Andresen
Tel.: (+47) 6756 7490
E-mail: navy@navy.no
www.navy.no
