TrackWell and Tölvumiðlun sign a cooperation agreement
January 2006

 

TrackWell and Tolvumidlun signed a cooperation agreement regarding Timon a Web based time registration solution from TrackWell. Tolvumidlun will integrate Timon into their suite of HRM soluitons including the payroll system H-Laun3. Tolvumidlun will also sell Timon and provide service to their customers.

Timon is a time registration system that allows employee registration, from the web, by pone, from the task bar and/or access card based on user authorisation. Through an Internet access management can view employee attendance in real time and manage (correct/accept), registered time and work.

Original text

Tölvumiðlun og TrackWell undirrita samstarfssamning

Undirritaður hefur verið samstarfssamningur á milli Tölvumiðlunar og TrackWell um sölu og þjónustu á tíma- og verkskráningakerfinu Tímon.

Samstarfssamningurinn felur í sér að Tölvumiðlun mun bjóða Tímon frá TrackWell sem hluta af HLaun3 - staðlaðri heildarlausn í starfsmannamálum. Kerfin verða samþætt í meira mæli en áður hefur verið gert og útbúin sérstök tenging á milli þeirra til að tryggja örugg samskipti og að stofnupplýsingum sé aðeins haldið við á einum stað. Áframhaldandi þróun og samþætting kerfanna hefur að leiðarljósi aukið hagræði fyrir notendur.

HLaun3 er stöðluð heildarlausn í starfsmannamálum sem styður allt ferli mannauðsstjórnunar, frá umsókn til starfsloka. Kerfið samanstendur af stöðluðum einingum sem notendur velja, allt eftir þörfum og umfangi hvers fyrirtækis. Allar kerfiseiningar eru samþættar og þannig er komið í veg fyrir tvískráningar sömu upplýsinganna.
Kerfiseiningar HLaun3 eru eftirfarandi: Laun - Dagpeningar - Birgðir - Greiningar - Mannauður - Ráðningar - Starfsmannavefur – Sérlausnir.

Tímon er öflugt tíma- og verkskráningarkerfi sem uppfyllir þarfir fyrirtækja og stofnana af öllum stærðum og gerðum. Kerfið er hluti af MRM (Mobile Resource Management) lausn Trackwell. Aðrar einingar í Tímon eru viðvera og mötuneytiseining. Stimpilklukkur eru alveg óþarfar því Tímon býður upp á að notaður sé sími, vefviðmót eða tækjastika til skráningar. Með þessu móti skapast alveg nýir möguleikar fyrir fyrirtæki og ekki þarf að fjárfesta í neinum viðbótarbúnaði til að nýta sér kosti og sveigjanleika kerfisins. Sjá nánar á www.timon.is

TrackWell er stofnað 1996. Fyrirtækið hefur sérhæft sig í lausnum fyrir auðlindastjórnun MRM (Mobile Resource Management). Helstu MRM vörur TrackWell eru: Tímon tíma- og verksráningarkerfi, TracScape flotastýringar- og eftirlitskerfi og SeaData útgerðarstjóri og afladagbók.
Viðskiptavinir Trackwell eru í öllum heimsálfum en 40% af veltu fyrirtækisins kemur erlendis frá.
Meðal innlendra viðskiptavina TrackWell eru: Akranesbær, Baugur, Byko, Eimskip, IAV, Kynnisferðir, Landhelgisgæslan, Landsbankinn, Landspítali Háskólasjúkrahús, Og Vodafone, Rarik, Síminn og Steypustöðin.

Tölvumiðlun er eitt elsta hugbúnaðarfyrirtæki landsins, stofnað árið 1985. Hjá Tölvumiðlun starfar fjöldi sérfræðinga með mikla reynslu að hugbúnaðarverkefnum og þjónustu hugbúnaðar.
Helstu viðfangsefni fyrirtækisins eru H-Laun launakerfi, HLaun3 - stöðluð heildarlausn í starfsmannamálum, SFS Fjárhagskerfi fyrir sveitarfélög og rekstrarþjónusta auk sérsmíði hugbúnaðar fyrir fyrirtæki og stofnanir.
Viðskiptavinir Tölvumiðlunar eru flest sveitarfélög landsins, sjúkrahús, fjölmargar stofnanir og fyrirtæki svo sem Alcan, Dagsbrún, Fasteignamat ríkisins, FL-Group, Kaupás, Landsbanki Íslands, Sparisjóðir, ofl.