Nýjir módular og breytingar á Tímon
júní, 2006

 

Tímon MRM (Mobile Resource Management)

Unnið er að því að tvinna saman Tímon og TracScape kerfin saman þannig að fyrirtæki sem notað hafa bæði kerfin aðskilin geta nú framkvæmt tíma- og verkskráningar í TracScape og þannig náð að framkvæma nauðsynlegar skráningar í rauntíma.

Tímon er alhliða tíma- og verkskráningarkerfi sem skilar gögnum inn í launakerfi og verkbókhald. Öll vinnsla er á vef þannig að það er aðgengilegt launadeild og stjórnendum um Internetið. Inn- og útstimplanir er framkvæmdar með síma eða í vefviðmóti.

TracScape er vefþjónusta ætluð fyrirtækjum sem reka bílaflota og hyggjast beita markvissri flotastýringu til að ná fram almennri hagræðingu í rekstri, meiri nýtingu flotans og bættri ímynd í umferðinni.

Vaktakerfi.

Vakatakerfið er hannað til að koma til móts við fyrirtæki í verslunarrekstri með breytilegan opnunartíma og viðveru. Kerfið gerir kleift að manna vaktir út frá sérþekkingu og mannaaflaþörf og flygjast með áæluðum kostnaði út frá mönnun.

Uppmæling

Kerfið er þróað í samvinnu við ÍAV og einfaldar uppmælingaruppgjör við iðnaðarmenn. Þar sem nú er unnt að skrá alla uppmælingavinnu í rauntíma þá verða útgreitt laun ávalt í takt við lokauppgjör mælingastofu.

Tækjaskráning

Tækjaskráning er öflug viðbót við Tímon sem einfaldar kostnaðarmat við verk. Á sama hátt og kostnaður fellur á verk í samræmi við þær vinnustundir sem unnar eru í verki, þá hleðst kostnaður á verk samfara tækjanotun. Tímon gerir verktökum nú kleift að skrá tæki á verk og halda utanum uppsafnaðan kostnað vegna þeirra og getur skilað upplýsingum í verkbókhald.