|
TrackWell hleypti nýrri Tímon útgáfu af stokkunum á Hilton hótelinu í hádeginu 10. október að viðstöddu miklu fjölmenni.
Tæplega 150 manns úr hópi notenda mættu á hádegisfund hjá TrackWell þar sem kynnt var útgáfa 4.0 af Tímon. Þessi útgáfa innifelur yfirgripsmestu breytingarnar gerðar hafa verið á kerfinu til þessa. Þær ná til útlits, verkferla, virkni, samþættingar eininga, úttaks og nýrra kerfiseininga.
Allt kapp hefur verið lagt á að gera Tímon enn sveigjanlegri og notendavænni ásamt því að setja kerfið í þann búning að einfalt sé að bæta virkni með stiglausum uppfærslum.
Meðal nýrra kerfiseininga sem kynntar vou á fundinum má nefna vaktakerfi/mannaflaþörf sem hentar jafnt fyrir rúllandi vaktir og breytilega mannaflaþörf í verslunum tengt sérsviði eða stöðu. Uppmælingakerfi fyrir verktaka sem hannað var og útfært í samráði við ÍAV.
Viðskiptavinir sem eru með Tímon í hýsingu hjá TrackWell greiða hvorki fyrir nýju útgáfuna af Tímon eða vinnu við uppfærslu.
Framundan eru námskeið í Tímon 4.0. Áhugasamir geta sent fyrirspurnir um tímasetningar á support@trackwell.com
|