Sjóvá and Trackwell sign agreement on traffic safety
April 2006

 

Sjóvá an insurance company and TrackWell Software sign an agreement on preventive measures for traffic safety.

Sjóvá and TrackWell have signed a cooperation agreement on preventive measures for traffic safety. The agreement signifies the intent of both parties to offer Sjóvá’s customers an access to TrackWell’s TracScape fleet management solution. The TracScape service gathers information from vehicles about their position in near-real time, driving habits, utilisation and other relevant information with the aim to impose better driving practice and lower accident rate.

Sjóvá og TrackWell gera samning um forvarnir.

Sjóvá og TrackWell hafa undirritað samstarfssamning um forvarnir. Með samningnum ætla fyrirtækin að bjóða fyrirtækjum sem eru viðskiptavinir Sjóvá aðgang að flotastýringarþjónustunni TracScape. Þjónustan felst í því að upplýsingum um staðsetningu og aksturslag ökutækja er safnað frá ökuritum sem settir eru í ökutæki viðskipavinarins. Kerfið vinnur úr þessum upplýsingum skýrslur um ökulag og nýtingu farartækja.

Tilgangur Sjóvá með samstarfinu er að efla forvarnir. Með samningnum stuðlar Sjóvá að því að viðskiptavinir félagsins taki upp eftirlit með ökutækjum sínum og beiti markvissri flotastýringu til að bæta aksturslag og draga úr slysatíðni. Annarskonar ábati fyrir viðskiptavini Sjóvá er lækkun á rekstrarkostnaði ökutækja svo ekki sé talað um bætta ímynd fyrirtækjanna.

Markmið Sjóvá er að draga úr tjónakostnaði auk þess að vera í forystu fyrir bættri umferðamenningu með breiðari þjónustu við sína viðskiptavini. Markmið TrackWell er að TracScape verði leiðandi á sviði flotaeftirlits og flotastýringar á íslenskum markaði.

TrackWell var stofnað árið 1996 og hefur sérhæft sig í lausnum fyrir auðlindastjórnun (Mobile Resource Management), svo sem mannafla og tæki. Helstu auðlindastjórnunarvörur TrackWell eru TracScape, flotastýringarkerfi, Tímon, tíma- og verksskráningarkerfi og SeaData, útgerðarstjóri og afladagbók. Viðskiptavinir TrackWell eru í dag í fimm heimsálfum. Meðal innlendra viðskiptavina eru: Akranesbær, Baugur, BYKO, Eimskip, IAV, Kynnisferðir, Landhelgisgæslan, MEST, Neyðarlínan, Landsbankinn, Landspítali háskólasjúkrahús, OgVodafone og Síminn.

Frekari upplýsingar um er að fá hjá fyrirtækjasviði Sjóvá.
Frekar upplýsingar um flotastjórnun www.trackwell.com