Vinahópar í Ástralíu nota TrackWell lausn til að staðsetja vini sína

Október 2006


Farsímafélagið Optus í Ástralíu hleypti af stokkunum, í ágúst síðasliðnum, “Friend FindA” þjónustu sem er sú nýjasta í röð lausna sem tilheyra “FindA” staðsetningarþjónustum fyrirtækisnis. Verkefnið er unnið í samvinnu Optus, TrackWell og Genasys og byggir lausnin á fyrirliggjandi lausn frá TrackWell sem aðlagaði hana að þörfum Optus.

Friend FindA gerir vinum kleift að hafa samskipti við og finna hvern annann hratt og auðveldlega með farsímum. Friðhelgi er tryggð með gagnkvæmu samþykki þáttakenda og möguleikum aðila að gera sig ”ósýnilegan” öðrum fyrirvaralaust. 30. október þegar reynslutíma líkur verður opnað fyirr áskriftir en fram að þeim tíma geta viðskiptavinir Optus tekið þátt án endurgjalds.

Friend FindA samanstendur af mörgum undirkerfum sem hafa afmörkuð hlutverk í heildarlausninni þar má telja staðsetningarvirkni, kortaþjóni, SMS gátt og OptusZoo portal.

Optus er eitt stærsta símfélag í Ástralíu og hluti af SingTel sem er leiðandi símfélag á Asíu-Kyrrahafs svæðinu. Optus hefur með góðum árangri, lagt áherslu á að leiða saman aðila allstaðar að úr heiminum sem búa yfir þekkingu og reynslu sem þarf til að mynd heildarlausn sem er sérsniðinn að tilteknum markhópum.

Samstarfsaðili TrackWell , Genasys, er alþjóðlegt fyrirtæki með höfuðstöðvar á Spáni. Genasys er leiðandi í “hönnun landuplýsingakerfa og samhæfingu lausna. Hlutverk Genasys í þessu verkefni var að samtvinna ólíka þætti þessarar lausnar við önnur kerfi Optus.

TrackWell er íslenskt hugbúnaðarhús sem sérhæfir sig í forðastjórnunar kerfum fyrir fyritæki. Hlutverk TrackWell í “Friend FindA” verkefninu var að leggja til innviði kerfisins og megin virkni ásamt séraðlögunum.

Við erum ánægð með árgangur sem þegar hefur náðst í verkefninu. Það er mikil áhersla lögð á kynningu meðal áskrifendahóps Optus” segir Miguel Castro, Sölustjóri Genasys Asia and Pacific. “Við erum sannfærðir um að herferðin muni skila góðum árangri og laða að sér fjölmarga notendur”.

Frekari upplýsingar um Friend FindA lausnina er að finna á OptusZoo portal:
www.optus.com.au/zoo/friendfinda