Tímon flotastýring til KNH
Janúar 2007

 


KNH á Ísafirði bætast í hóp fyrirtækja sem eru að innleiða Tímon flotastýringu um þessar mundir. KNH er eitt af stóru jarðvegsvinnufyrirtækjunum á Íslandi með yfir 60 tæki af ýmsum gerðum. Tímon gerir stjórnendum kleift að hafa umsjón með flotanum úr fjarska og hafa nánara eftirlit með kostnaði samfara við framvindu verkefna. Markmiðið með innleiðingunni er að koma á rauntímastjórnun, draga úr rekstrarkostnaði og fækka slysum.