Aalborg Portland í TracScape
júlí, 2006

 

Aalborg Portland tekur upp TracScape til að stýra sínum flota og einfalda eftirlit. Kerfið er ætlað fyrirtækjum sem reka bílaflota og hyggjast beita markvissri flotastýringu til að ná fram almennri hagræðingu í rekstri, meiri nýtingu flotans og bættri ímynd í umferðinni. Sjá www.tracscape.com

Aalborg Portland Íslandi ehf (APÍ) sem er í eigu Aalborg Portland AS í Danmörku hefur starfað hér á landi frá árinu 2000 við markaðssetningu og dreifingu á hágæða sementi. Félagið rekur tvö sex þúsund tonna síló fyrir laust sement í Helguvík og dreifingarmiðstöð fyrir pakkað sement á sama svæði. Frá byrjun október 2005 dreifir félagið einnig sementi frá tveimur 1.300 tonna sílóum á Reyðarfirði. Dreifingin á Austfjörðum er í samstarfi við Arnarfell ehf og Malarvinnsluna hf.

Flutningabílar félagsins dreifa lausu sementi um allt land til afhendingar á sementssíló viðskiptavina. Pakkað sement frá Aalborg Portland er selt í helstu byggingavöruverslunum og múrbúðum víða um land.