TrackWell hefur einsett sér að vera í fremstu röð í lausnum á sviði forðastýringar. Með Tímon ná rekstaraðilar betri stýringu á forðum s.s. starfsmönnum, bílum, skipum og öðrum tækjum. Lausnir ná til þátta eins og flotastýringar, ásamt tíma- og verkskráningu.
Viðskiptavinum hefur fjölgað mikið síðustu misseri. Á þessu ári hafa þegar yfir 60 fyrirtæki bæst í hóp viðskiptavina sem byggja upplýsingakerfi sitt á Tímon þjónustu. Þótt mikið hafi gengið á og álag verið í mesta lagi á köflum hefur mikill velvilji hvatt okkur til þess að leggja okkur enn meira fram og gera enn betur.
Nýverið var gerð þjónustukönnun meðal viðskiptavina. Í heildina fékk Tímon ágætis einkunn en einnig fengum við nokkar ábendingar um hvar við gætum gert betur. Til þess að ná markmiðum okkar um að gera þjónustu okkar betri og rekstur kerfa hraðvirkari og öruggari höfum við gert nokkar breytingar.
Bætt þjónusta: Nýtt ráðgjafa- og þjónustusvið hefur verið stofnað sem starfa 6 aðilar og verður þeim fjölgað í 9 á næstu mánuðum. Opið er á þjónustuborði daglega frá kl. 8:30- 16:30 og einnig er hægt að senda þjónustubeiðnir á support@trackwell.com Þjónustubeiðnir eru skráðar í beiðnakerfi.
Öruggari og hraðvirkari Tímon: Fjárfest hefur verið í nýjum tölvubúnaði sem byggir á “blade” tækni og gerður hefur verið samningur við Anza um hýsingu og rekstur á búnaði. Markmið okkar með þessum samningi er að gera rekstur búnaðarins sem öruggastan.
Nýjungar í virkni: Unnið er að nýrri útgáfu, Tímon 4.0 sem verður tilbúinn í byrjun næsta árs. Margar nýjungar verða þar ásamt nýju útliti á Tímon. Einnig er unnið að nýjum kerfiseiningum sem verða kynntar á næstunni, hægt er að fræðast um núverandi kerfiseiningar á www.timon.is. Uppfærsla á Tímon mun framvegis verða gerð sjálfvirk og án kostnaðar. Þeir viðskiptavinir sem sjálfir hýsa Tímon greiða óhjákvæmilega áfram fyrir vinnu vegna uppfærslu.
Ef þið hafið einhverjar athugasemdir hvetjum við ykkur til þess að hafa samband og láta okkur vita.
Í stað þess að senda út jólakort nú í desember höfum við ákveðið að bæta við árlegan styrk sem við veitum í gott málefni ár hvert. Hægt verður að fylgjast með á heimsíðunni okkar www.trackwell.com hvaða félag hlýtur styrkinn í ár.
Um leið og við óskum ykkur gleðilegra jóla, viljum við þakka fyrir samstarfið á líðandi ári.
Hafið það gott yfir jólahátíðina. Starfsfólk Trackwell
|