Mánudagur, 29 mars 2010
,,Við völdum Tímon eftir vandlegan samanburð við helstu tímaskráningarkerfi á markaðnum” sagði Guðni B. Guðnason. “Starfsemi okkar er dreifð um allt land og starfsmenn eru tæplega 300. Það er því mikilvægt að vera með traust kerfi sem hentar vel fyrir svo dreifða starfsemi” sagði Guðni ennfremur.
Jón Ingi Björnsson, framkvæmdastjóri TrackWell, segir það einkar ánægjulegt að fá fyrirtæki eins og Lyf & Heilsu í viðskiptavinahópinn. “Það undirstrikar styrk og sveigjanleika Tímon að Lyf & Heilsa velji Tímon fram yfir önnur kerfi.”