Sendinefnd frá Google sem var hér á landi í boði Forseta Íslands heimsótti Trackwell og kynnti sér starfsemi þess, þar á meðal Trackwell SeaData, sem er flotastýringarkerfi með afla- og afurðaskráningu sem nýtist bæði skipstjórnarmönnum, útgerðum og yfirvöldum við umsjón fiskveiða.
Tilgangur ferðarinnar var að kanna grundvöll að samstarfi sem tryggt gæti ábyrgara eftirlit með veiðum á höfum heims og hvernig upplýsingatækni og reynsla Íslendinga gæti nýst í þessum efnum. Sendinefndin átti viðræður við fyrirtæki á sviði upplýsingatækni og í sjávarútvegi, Siglingamálastofnun, Hafrannsóknastofnun, Vaktstöð siglinga og fleiri aðila. Niðurstaða heimsóknarinnar var að vinna grundvöll að áætlun um slíkt samstarf á næstu mánuðum og misserum.

