Trackwell var valið eitt af fyrirmyndarfyrirtækjum VR í hópi meðalstórra fyrirtækja árið 2012.
Þegar valin eru fyrirmyndarfyrirtæki ársins eru niðurstöðurnar á átta lykilþáttum úr VR könnun skoðaðar: trúverðugleiki stjórnenda, starfsandi, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleiki í vinnu, sjálfstæði í starfi, ímynd fyrirtækis og ánægja og stolt. Þessir þættir endurspegla það traust sem ríkir í samskiptum innan fyrirtækisins, hversu stolt eða hreykið starfsfólkið almennt er af starfi sínu og fyrirtækinu sem það starfar hjá, þá virðingu sem yfirmenn bera fyrir starfsfólki sínu og það andrúmsloft sem ríkir á vinnustaðnum.
Starfsandi er líklega sá þáttur sem flestir líta til og er ánægjulegt að segja frá því að Trackwell var þar í 1. sæti á meðal meðalstórra fyrirtækja sem tóku þátt í könnuninni. Annar þáttur sem má nefna er trúverðugleiki stjórnenda, enn hann tekur m.a. á samskiptum milli yfirmanna og undirmanna og trausti til stjórnenda fyrirtækisins. Þar var Trackwell í 2. sæti á meðal meðalstórra fyrirtækja. Vert er að nefna að í hópi meðalstórra fyrirtækja eru fjöldi starfsmanna á bilinu frá 20 upp í 49 og tóku 104 fyrirtæki þátt í könnuninni að þessu sinni.
Hjá Trackwell starfar fjölbreyttur hópur starfsmanna með mikla þekkingu, þar á meðal háskólamenntun á sviði verkfræði, tölvunarfræði, viðskiptafræði og mannauðsstjórnunar. Gildi sem starfsmenn Trackwell starfa eftir eru áreiðanleiki, nýsköpun og gæði.
Sjá nánar um hugmyndafræðina á bakvið val á fyrirtæki ársins á síðu VR.

