Sífellt eru gerðar meiri kröfur til skipstjórnarmanna um skráningar gagna um borð í fiskiskipum. Skráningar geta verið tímafrekar og oft þarf jafnvel að skrá sömu upplýsingarnar á mörgum mismunandi stöðum. Til þess að minnka tvískráningar og auka skilvirkni hefur TrackWell hannað kerfið Afurðastjórann, sem heldur utan um afla og afurðir um borð og tengist við Afladagbók.
TrackWell er hluti af íslenska sjávarklasanum og sér mikinn hag í góðu samstarfi við önnur fyrirtæki innan geirans. Afurðastjóraverkefnið var unnið í samstarfi við fjölda sjávarútvegsfyrirtækja með styrk frá Tækniþróunarsjóði Rannís og AVS. Markmiðið er auðvelda útgerðum að nýta rekjanleika til samþættingar á gögnum úr upplýsingakerfum virðiskeðju sjávarafurða.
Skipskerfi
Afurðastjóri um borð tengist við gagngrunn rafrænu afladagbókarinnar. Þannig eru allar upplýsingar um veiðferðir, köst og staðetningar sóttar sjálfkrafa. Skipskerfið skiptist í einingar sem hægt er að virkja eftir þörfum. Í Afurðabók er hægt að skilgreina nýjar afurðir, auk hráefnis og umbúða. Einnig er haldið utan um afurðaverð og gengi gjaldmiðla. Í Vinnslunýtingu er haldið utan um nýtingarprufur fyrir vinnsluskip og skýrslur til Fiskistofu og löndunarhafnar. Skipsdagbók inniheldur færslur og athugasemdir skipstjóra og í Áhafnalista eru upplýsingar um mannskap og vaktir.
Búið er að setja upp tengingu milli Afurðastjóra og IceLabel límmiðaprentunar frá fyrirtækinu Strikamerki. Afurðastjórinn heldur utan um vinnslulotur og hægt er að senda lotunúmerið út á prentarann.
