Nesfrakt tekur TrackWell Flota í notkun

22. nóvember 2011

Nesfrakt hefur samið við TrackWell um að nota TrackWell Flota kerfið í öllum flutningabílum til stjórnunar og eftirlits með flotanum. TrackWell búnaður verður líka settur í tengivagna fyrirtækisins til að halda utan um staðsetningu þeirra á hverjum tíma. TrackWell kerfið tengist bíltölvunni (CAN bus) og biritr ýmsar upplýsingar um ástand farartækjanna í fotakerfinu sem stuðla að betri yfirsýn og markvissari greiningu á því sem betur má fara.


Meðal annarrar virkni í TrackWell Flota:

  • Flotastjórnun –rauntímayfirsýn á korti um Internet
  • Flotaeftirlit –  aksturslag, hemlun, hröðun, G-kraftagreining
  • Flotaeftirlit –  akstursleiðir, hraði, viðkomustaðir
  • Viðhaldsvöktun – áætlanagerð vegna viðhaldsverkefna og skráning
  • Verkúthlutun  – „dispatching“ áætlunarkerfi fyrir útkeyrslu
  • GPS-leiðsögukerfið – sjálfvirk leiðarlýsing
  • Þjófavörn í bíla – Skilaboð með SMS til eiganda með upplýsingum um staðsetningu

TrackWell hf. hefur frá stofnun árið 1996, sérhæft sig í hugbúnaðargerð með sérstakri áherslu á lausnir tengdar fjarskiptum og staðsetningatækni. Þjónustan kallast TrackWell Forðastýring. Hugtakið forðastýring er þýðing á Mobile Resource Management (MRM) og stendur fyrir kerfi sem innifelur verkferla til þess að hafa eftirlit með og stýra notkun forða – „hver er að gera hvað á hverjum tíma, hvar og hvernig“.  TrackWell Floti er í rúmlega 1.000 farartækjum á Íslandi og hjá dótturfélagi TrackWell í U.S.A.
Nánari upplýsingar um TrackWell Flota veitir Þórður Ingason sölustjóri hjá TrackWell.
Sími 510 06 00 thordur@trackwell.com eða á sales@trackwell.com