Fimmtudagur, 05 febrúar 2009
Frumtak hefur lokið fyrstu fjárfestingu sinni og fest kaup á hlut í Trackwell hf. Trackwell hefur frá stofnun árið 1996, sérhæft sig í hugbúnaðargerð með sérstakri áherslu á lausnir tengdar fjarskiptum og staðsetningatækni. Trackwell hefur þróað þjónustu sem kallast Trackwell Forðastýring. Hugtakið forðastýring er þýðing á Mobile Resource Management (MRM) og stendur fyrir kerfi sem innifelur verkferla til þess að hafa eftirlit með og stýra notkun forða – hver er að gera hvað á hverjum tíma, hvar og hvernig.
Kostnaðarvitund fyrirtækja, vilji til að hagræða og ná betri tökum á starfseminni er vaxandi þáttur í nútíma stjórnun. Með forðastýringu frá Trackwell geta fyrirtæki fylgt verkferlum sem gera þeim kleift að ná verulegri hagræðingu í rekstri með bætri skráningu og fullkominni yfirsýn yfir forða fyrirtækisins. Trackwell Forðastýring er markaðssett undir þremur vörumerkjum þar sem lausnir sem henta mismunandi starfssemi eru flokkaðar saman:
Trackwell Tímon, fyrir starfsmannastjórn og hentar öllum fyrirtækjum
Trackwell Floti, fyrir fyrirtæki sem reka bílaflota
Trackwell SeaData, fyrir sjávarútveg
Viðskiptavinir Trackwell hafa náð miklum árangri í rekstri með notkun á Trackwell Forðastýringu. Um 300 íslensk fyrirtæki, í öllum geirum atvinnulífsins, nota þjónustuna til að stýra og hafa yfirsýn með um 2000 farartækjum og 30.000 starfsmönnum. Trackwell hefur selt vörur og þjónustu til nítján landa í fimm heimsálfum og rekur dótturfyrirtækið Trackwell ADS í Ameríku.
„Það er okkur mikil ánægja að Trackwell skuli vera fyrsta fjárfesting Frumtaks“ sagði dr. Eggert Claessen, framkvæmdastjóri Frumtaks. „Trackwell hefur náð miklum árangri í sölu forðastýringalausna sinna. Við væntum mikils af fyrirtækinu og erum sérstaklega spenntir að sjá fyrirtækið nýta sérþekkingu sína í sölu á sjávarútvegslausnum á erlendum mörkuðum. Þarna eru mikil tækifæri sem nú er hægt að nýta“.
„Við höfum verið að þróa forðastýringarlausnir byggðar á þekkingu sem við höfum öðlast frá verkefnum eins og sjálfvirku tilkynningaskyldunni og farsímaþjónustum Símans á síðustu árum. Eftir mjög góðar viðtökur hjá íslenskum fyrirtækjum höfum við unnið að áætlun um hvernig hægt sé að flytja þessa þekkingu út. Nú erum við í þeirri stöðu að markaðsleiðir eru tilbúnar en eftir að hafa fjármagnað alla uppbyggingu út úr eigin rekstri vantar okkur peninga til þess að byggja upp sölu og markaðsmál. Það er mat stjórnenda og stærstu hluthafa að best sé að sækja fjármagn með því að auka hlutafé. Nú er Frumtak gengið til liðs við okkur sem við teljum vera góðan meðeiganda til þess að vinna með okkur að sölu á íslenskri þekkingu til erlendra aðila”, sagði Jón Ingi Björnsson, framkvæmdastjóri Trackwell.
Frumtak er samlagssjóður í eigu Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, sex af stærstu lífeyrissjóðum landsins og bankanna þrigga. Frumtak fjárfestir í nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum sem þykja vænleg til vaxtar og útrásar. Markmið Frumtaks er að byggja upp öflug fyrirtæki sem geta verið leiðandi á sínu sviði og um leið skilað góðri ávöxtun til fjárfesta. Frumtak fjárfestir í fyrirtækjum sem eru komin af klakstigi og er áskilið að fyrir liggi ítarlegar viðskiptaáætlanir.
Nánari uppýsingar veita:
Trackwell Frumtak
Jón Ingi Björnsson,framkvæmdastjóri Eggert Claessen, framkvæmdastjóri
Sími 5100607 Sími 5101850