Flotastýring og eftirlit
Trackwell Floti er vefþjónusta ætluð fyrirtækjum sem reka bílaflota og hyggjast ná fram hagræðingu í rekstri, betri nýtingu flotans, sparnaði og bættri ímynd í umferðinni. Viðskiptavinir velja einfaldlega hvaða virkni þeir þurfa aðgang að. Fyrir vikið uppfyllir þjónustan þarfir breiðs hóps og aðliar þurfi aðeins að greiða fyrir þá virkni sem þeir nota. Þetta endurspeglast í fjölbreyttum hópi notenda sem starfa á ólíkum sviðum atvinnulífsins og nýtir kerfið á mjög mismunandi hátt. Þar má nefna ferðaþjónustu, almenningssamgöngur, flutningaþjónustu, bílaleigur, skipaútgerð, verktaka, steipustöðvar, olíufélög og svo mætti áfram telja.
TrackWell Floti býður meðal annars upp á ferlivöktun, aksturslagsgreiningu, viðhaldsvöktun, verkúthlutun og samskipti við bílstjóra. Kerfið sýnir hvar bifreiðarnar eru á hverjum tíma á vegakorti og skoða má ökuferla og aksturslag ökumanna eftirá á korti eða í skýrsluformi. Flotastjórnendur geta einnig fengið sendar sjáfvirkar tilkynningar um frávik, s.s. hraðakstur, akstur utan skilgreindra svæða og stoppgreiningu.
Markmið viðskiptavina með innleiðingu á Trackwell Flota fara mjög eftir markaðssvæðum og starfssemi. Almennt má þó segja að sá hagur sem fyrirtæki leita eftir með innleiðingunni sé; hagræðing, sparnaður, yfirsýn, bætt þjónusta og góð ímynd. Með notkun TrackWell Flota nást þessi markmið meðal annars á eftirfarandi hátt:
TrackWell bíður uppá fjölbreytt úrval búnaðar sem settur er í bifreiðar. TrackWell er í nánu samstarfi við framleiðendur og fylgist þannig vel með öllum tækninýjungum á þessu sviði.
Fáðu allar nánari upplýsingar í síma:5 100 600. Einnig má senda póst á netfangið: sales@trackwell.com