
Útgerðarstjóri safnar upplýsingum úr Afladagbókum frá skipum útgerðar. Gögnin eru vistuð í gagnagrunni til frekari greiningar og úrvinnslu. Kerfið hentar útgerðastjórum og öðrum stjórnendum sem vilja hafa sem besta yfirsýn yfir veiðarnar. Hægt er að skoða gögnin í gegnum Aflakort eða Aflagreini.
Aflagreinirinn sýnir á aðgengilegan hátt samantekt veiðiferðar allra skipa sem tengjast Útgerðastjóra. Hentar vel fyrir vinnslustjóra og aðra sem þurfa fyrst og fremst að hafa upplýsingar um magn og samsetningu afla. Allar skýrslur er hægt að vista sem Excel eða pdf skjöl.
